Kolbeinn Bjarnason

composer





Kolbeinn Bjarnason

composer | tónskáld


2022 - Frost á Þingvöllum - Andrea D. Vatnsdal Pálsd.

Kolbeinn Bjarnason (1958) byrjaði að semja tónlist eftir fimmtugt en hafði þá starfað sem flautuleikari og -kennari um áratuga skeið. Hann lagði flautuna á hilluna um 2017. Hann hafði þá haldið tónleika víða um lönd og útgáfufyrirtæki á borð við Naxos og Bridge höfðu gefið út leik hans. Meðal hljómdiska Kolbeins er heildarsafn flaututónlistar Brians Ferneyhough og flaututónlist Toshio Hosokawa. 

Kolbeinn hefur unnið með fjölmörgum íslenskum og erlendum tónskáldum og frumflutt verk þeirra, haldið tónleika víða um lönd, haldið námskeið, flutt fyrirlestra við tónlistarháskóla og setið í dómnefnum í flautukeppnum. Hann er annar stofnenda Caput-tónlistarhópsins.

Verkalisti



Stílæfingar 2023  

15 mín.

Sópran og víóla

Texti: Raymond Queneau. Bæði upprunalegi franski textinn og íslensk þýðing Rutar Ingólfsdóttur.

Frumflutningur: Dúplum Dúó - Björk Níelsdóttir og Þóra Margrét Sveinsdóttir.
Tíbrártónleikar í Salnum í Kópavogi 25. febrúar 2024.



Expressions passions de l’âme
2023

10 mín.
Fiðla og harpa.

Hugmyndir sóttar í teikningar Charles le Bruin af „ástríðum sálarinnar“.

Frumflutningur: Laufey Sigurðardóttir og Elísabet Waage. Salurinn í Kópavogi 18. febrúar 2024.



Treystu náttmyrkrinu 2020-2024
15 mín.
Sópran, flautur, klarínettur og gítar.

Ljóð: Sigurður Pálsson

Frumflutningur: Stirni Ensemble - Björk Níelsdóttir, Hafdís Vigfúsdóttir, Grímur Helgason og Svanur Vilbergsson. Myrkir músíkdagar 24. janúar 2024.

Kolbeinn Bjarnason
 Hönnun: Andrea D Vatnsdal Pálsd.
2023