Kolbeinn Bjarnason

composer




Kolbeinn Bjarnason (1958) byrjaði að semja tónlist eftir fimmtugt en hafði þá starfað sem flautuleikari og -kennari um áratuga skeið. Hann lagði flautuna á hilluna um 2017. Hann hafði þá haldið tónleika víða um lönd og útgáfufyrirtæki á borð við Naxos og Bridge höfðu gefið út leik hans. Meðal hljómdiska Kolbeins er heildarsafn flaututónlistar Brians Ferneyhough og flaututónlist Toshio Hosokawa.

Kolbeinn hefur unnið með fjölmörgum íslenskum og erlendum tónskáldum og frumflutt verk þeirra, haldið tónleika víða um lönd, haldið námskeið, flutt fyrirlestra við tónlistarháskóla og setið í dómnefnum í flautukeppnum. Hann er annar stofnenda Caput-tónlistarhópsins.

Kolbeinn lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Tjörnina árið 1977. Hann stundaði nám í bókmenntum og heimspeki við Háskóla Íslands ásamt því að sinna
tónlistarnámi og útskrifaðist sem flautuleikari frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1979.  Framhaldsnám stundaði hann einkum hjá Manuelu Wiesler en einnig í Sviss, Bandaríkjunum og Hollandi. Hann lauk M.A. prófi í tónsmíðum frá Listaháskóla Íslands árið 2013.

Hann hefur samið verk af ólíkum toga. Meðal þeirra sem hafa frumflutt verk hans eru Hamrahlíðarkórinn, tónlistarhóparnir Caput, Elektra, Kammersveit Reykjavíkur, Dúó Harpwerk, Kúbus og New Juilliard Ensemble, semballeikarinn Guðrún Óskarsdóttir, hörpuleikararnir Elísabet Waage og Katie Buckley, píanóleikararnir Junko Yamamato og Þórarinn Stefánsson og söngkonurnar Ingibjörg Guðjónsdóttir, Herdís Anna Jónasdóttir og Hildigunnur Einarsdóttir. Kolbeinn starfar nú sem tónskáld auk þess að kenna við Listaháskólann, MÍT og Tónlistarskóla Kópavogs.
Kolbeinn Bjarnason 2023
 Hönnun: Andrea D Vatnsdal Pálsd.